Umsóknir

Rafræn Reykjavík

Laugardagur 27. júlí 2024

TIlkynningar

Úrskráning úr mataráskrift orðin virk.

Nú geta foreldra valið að afskrá börn sín úr mataráskrift.

Til þess að afskrá barn þarf að velja pöntun á skólamat, velja barn og ýta á segja upp áskrift.


Afskráning úr mat

Því miður hefur ekki náðst að virkja afskráningarmöguleikann í pöntun á skólamat en sá hnappur verður ekki virkur fyrr en í byrjun næstu viku. 

Vinsamlegast athugið að segja þarf upp skráningu í mat fyrir 20. hvers mánaðar og tekur uppsögn gildi mánaðarmótin þar á eftir. Þau börn sem hafa verið skráð í mat nú þegar eru því skráð í mat út mánuðinn og nægjanlegt er að afskrá börnin fyrir 20. september til þess að afskráningin taki gildi.

 

Virðingarfyllst,

Kolbrún Hlín Hlöðversdóttir
verkefnisstjóri Rafrænnar Reykjavíkur.


Skráning í mötuneyti grunnskóla hafin

Skráning í mötuneyti grunnskóla hafin

 

Úr bréfi menntasviðs:

"Til að geta skráð nemendur í mataráskrift þarf foreldri/forráðamaður að skrá sig inn í Rafræna Reykjavík með kennitölu og lykilorði, sjáhttp://rafraen.reykjavik.is  á heimasíðu Reykjavíkurborgar,  http://www.reykjavik.is .

Þeir sem ekki hafa lykilorð þurfa að stofna aðgang og geta í kjölfarið fengið lykilorðið sent í sinn heimabanka eða  í almennum pósti.
Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu skulu hafa samband við skrifstofu skólans og fylla þar út samning um mataráskrift.

Mánaðarlegt gjald fyrir hádegismat í skólamötuneytum borgarinnar er samkvæmt ákvörðun borgarráðs hverju sinni og er innheimt  níu sinnum á skólaári, frá september til maíloka, í jöfnum greiðslum.  Gjaldið er nú 5000 kr. á mánuði.  Foreldrar geta valið að greiða með greiðsluseðli eða kreditkorti.

Vakin er athygli á því að innheimt er eftir á, t.d. er reikningur vegna áskriftar í september gefin út 20. þess mánaðar með gjalddaga  þann 1. október  og eindaga  1. nóvember.

Ef mataráskrift er hætt þarf að segja henni upp í Rafrænni Reykjavík og tekur hún þá gildi frá og með næstu mánaðamótum. Að öðrum kosti er áfram gert ráð fyrir hádegisverði  fyrir nemandann og greiðslu.

Matseðlar eru gefnir út í hverjum skóla og vistaðir á heimasíðu hans.

Þjónustuver Reykjavíkurborgar veitir alla frekari aðstoð við notkun Rafrænnar Reykjavíkur í síma 411 1111"

Velkomin í Rafræna Reykjavík

Umsóknir um þjónustu Reykjavíkurborgar á einum stað

Reykjavíkurborg leggur áherslu á að greiða götur viðskiptavina að þjónustu með þrenns konar aðgengi. Í fyrsta lagi með þjónustumiðstöðvum í hverfum borgarinnar. Í öðru lagi veitir Símaverið 4 11 11 11 upplýsingar og gefur samband við öll svið borgarinnar. Þriðja leiðin að þjónustu Reykjavíkurborgar er Rafræna Reykjavík og hér er að finna allar helstu umsóknir um þjónustu.

  • Umsókn send rafrænt og hægt er að fylgjast með afgreiðslu málsins í Rafrænni Reykjavík.
  • Umsókn send rafrænt en ekki er hægt að fylgjast með afgreiðslu málsins í Rafrænni Reykjavík.
  • Umsóknareyðublað á PDF formi til útprentunar (sækja Adobe Acrobat Reader)

Reykjavíkurborg | Símaver 4 11 11 11 | netfang: upplysingar@reykjavik.is